spacer.png, 0 kB

Frumkvöðlar eru ekki allir eins.  Sumir eru vel að sér í fjármálum á meðan aðrir kunna ekkert með tölur að fara.  Það er kannski það sem geri þetta svo spennandi og ófyrirsjáanlegt.

Það hefur þó ekkert með það að gera hvort sá sem kann að fara með peninga sé eitthvað betri í að spotta tækifæri en hinn sem kann ekki á tölur. 

 

Nýtt blogg daglega,

Nýtt efni á síðunni daglega!!!

Skrifið mér línu og segið mér frá! 

Námskeið á Landsbyggðinni.

Hafið samband!! 

augl2.jpg

FRÉTTABRÉF

frá frumkvoðull.com. 

 

Ertu með rekstur,

vantar þig ráðgjöf

varðandi nýsköpun? 

Hafðu samband 

augl.jpg

Survey

Hvað færðu margar hugmyndir á dag??
 

spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB
 
News
Frumtak festir kaup á Aðgerðargreiningu ehf. PDF Print E-mail
Written by Birgir Grímsson   
Tuesday, 21 April 2009

Vísir, 21. apr. 2009 14:21

Frumtak festir kaup á Aðgerðargreiningu ehf.

mynd

Frumtak hefur lokið annarri fjárfestingu sinni og fest kaup á hlut í AGR - Aðgerðargreiningu ehf. AGR var stofnað árið 1998 í framhaldi af rannsóknarverkefnum við verkfræðideild Háskóla Íslands. Í nánu samstarfi við Rannís og Háskólann í Reykjavík hefur fyrirtækið undanfarin ár þróað aðferðir og hugbúnað fyrir alþjóðlegan markað.

Í tilkynningu segir að helsta afurð fyrirtækisins er AGR Inventory Optimiser sem innleitt hefur verið hjá yfir 50 fyrirtækjum í 11 löndum. Grunnþróun AGR hefur alfarið farið fram hérlendis í samstarfi við fyrirtæki í vörudreifingu, framleiðslu og verslun. Kerfið framkvæmir söluspár fyrir hverja vöru og velur sjálfvirkt þá fræðilegu spáaðferð sem hentar best fyrir hverja vöru.

Helstu markaðssvæði AGR er í Evrópu með áherslu á Norðurlöndin, Bretland og Holland. Fyrirtækið rekur tvær skrifstofur undir merkjum AGR í Bretlandi og Danmörku en vinnur einnig náið með mörgum þekktum endursöluaðilum á meginlandinu s.s Microsoft og K3.

„AGR er vænlegur fjárfestingakostur fyrir Frumtak" segir dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks. „AGR hefur náð miklum árangri í sölu birgðastýringalausna sinna. Við væntum mikils af fyrirtækinu og erum sérstaklega áhugasamir að sjá fyrirtækið nýta sérþekkingu sína í sölu á bigðastýringalausnum á erlendum mörkuðum. Þarna eru mikil tækifæri sem hægt er að nýta með því fjármagni sem fyrirtækið fær".

„Eftir að hafa unnið undanfarin ár með mörgum af helstu innflutningsfyrirtækjum landsins hefur AGR byggt upp yfirgripsmikla þekkingu á sviði birgðastýringar," segir Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri AGR. „Við höfum einnig sannreynt að mikil þörf er fyrir slík kerfi erlendis þar sem fyrirtæki eru að glíma við nákvæmlega sömu vandamál og íslensk fyrirtæki. Það er því meiri eftirspurn eftir kerfinu í núverandi efnahagsástandi þar sem mikil pressa er á stjórnendum fyrirtækja að minnka bundið fé í birgðum. Það er ljóst að samstarf AGR og Frumtaks mun gera AGR kleift að auka áherslu á markaðssetningu og sölu á lausnum sínum."

Frumtak er samlagssjóður í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sex af stærstu lífeyris­sjóðum landsins og þriggja banka.

Last Updated ( Tuesday, 21 April 2009 )
 
Fjárfest í þremur fyrirtækjum frá Viðskiptasmiðjunni PDF Print E-mail
Written by Birgir Grímsson   
Tuesday, 21 April 2009

Vísir, 21. apr. 2009 14:59

Fjárfest í þremur fyrirtækjum frá Viðskiptasmiðjunni

mynd

Fjárfestingarsjóðir sem sérhæfa sig í sprotafyrirtækjum hafa fjárfest þrisvar á árinu. Nýsköpunarsjóður Atvinnulífsins fjárfesti í Gogoyoko og Frumtak fjárfesti í Trackwell og AGR. Þessi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að taka öll þátt í Viðskiptasmiðjunni - Hraðbraut nýrra fyrirtækja sem rekin er af Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins.

Þrjú fyrirtæki úr Viðskiptasmiðjunni voru sérstaklega verðlaunuð á aðalfundi Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins.

Aðalfundur Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins var síðasta föstudag, 17. apríl, 2009. Á fundinum var farið yfir síðastliðið starfsár en einnig markaði fundurinn lok 2. annar Viðskiptasmiðjunnar.

Í tilkynningu segir að fyrirtækið E-label , sem sérhæfir sig í klæðnaði og tengdum vörum fyrir nútímakonuna, fékk verðlaun fyrir bestan árangur á fyrstu önn en E-label hefur á námstímanum gjörbreytt starfsemi sinni, opnað heildsölu í London og eru í samningaviðræðum við stóran dreifingaraðila í Bretlandi.

Trackwell, forðastýringarkerfi fyrir flutningafyrirtæki sem stefnir á Bandaríkjamarkað hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á annarri önn. Fjárfestingarsjóðurinn Frumtak fjárfesti í Trackwell í febrúar síðastliðnum.

In Spirit of Iceland hlaut hvatningarverðlaun Viðskiptasmiðjunnar sinnar fyrir framúrskarandi viðskiptaáætlun og spennandi verkefni. Fyrirtækið hjálpar einstaklingum að ná hámarksárangri í lífinu og jafnvægi milli líkama, hugar og anda.

Viðskiptasmiðjan - Hraðbraut nýrra fyrirtækja er þekkingarstuðningskerfi fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki. Verkefnið er samstarfsverkefni Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins, Háskólans í Reykjavík, Copenhagen Business School, Lund University og Öresund Entrepreneurship Academy.

Tilgangur Viðskiptasmiðjunnar er að hjálpa frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum að skapa verðmæti og undirstöður fyrir farsælan fyrirtækjarekstur. Rannsóknir sýna að skortur á viðskiptaþekkingu er einn helsti veikleikinn í uppruna- og vaxtarferli fyrirtækja. Aðrar ástæður eru til dæmis skortur á þekkingu á rekstri sprotafyrirtækja og endurmati á starfseminni, skortur á tenglaneti við sérfræðinga, fjárfesta og aðra frumkvöðla, skortur á hvatningu og uppbyggilegri gagnrýni.

 
Góðæri fyrir nýsköpun PDF Print E-mail
Written by Birgir Grímsson   
Saturday, 28 March 2009

Fréttablaðið, 28. mar. 2009 05:00

Góðæri fyrir nýsköpun

mynd
Sveinbjörn sýnir Sigríði hér svefngreiningarbúnaðinn sem er afrakstur af miklu nýsköpunarstarfi. Búnaðurinn er nú á leið á markað.fréttablaðið/gva
Um 130 störf við sprota- og nýsköpunarfyrirtæki hafa orðið til á vegum Nýsköpunarstofnunar Íslands frá því haust. Stefnt er að því að 270 til viðbótar verði til áður en árið er liðið.

Um sjötíu manns hafa fengið störf við átaksverkefnið Starfsorka sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Vinnumálastofnun ýttu úr vör í janúar síðastliðnum í samvinnu við félagsmálaráðuneytið og iðnaðarráðuneyti. Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, segir stefnt að því að alls verði 300 störf til í þessu átaksverkefni.

Því er ætlað að hjálpa atvinnulausum við að komast aftur á vinnumarkað og er þannig háttað að fyrirtæki sem vinna að nýsköpun og þróun geta ráðið til sín fólk sem skráð er atvinnulaust. Vinnumálastofnun greiðir fyrirtækinu þá grunnatvinnuleysisbætur starfsmannsins ásamt átta prósenta mótframlagi í lífeyrissjóð. Fyrirtækið skuldbindur sig á móti til að greiða honum samkvæmt gildandi kjarasamningum í allt að eitt ár.
„Það er von okkar að eftir þann tíma sem starfsmaðurinn hefur unnið í verkefninu verði hann orðinn það dýrmætur að fyrirtækið kjósi að ráða hann," segir Sigríður.

Um 40 manns vinna í tveimur viðskiptasetrum sem stofnunin hefur komið á laggirnar í samvinnu við Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja, Landsbankann og Íslandsbanka.

Þetta eru viðskiptasetrin Torgið sem var opnað í desember síðastliðnum í húsnæði Landsbankans í Austurstræti 16 og Kvosin sem var opnuð í febrúar í húsnæði Íslandsbanka í Lækjargötu. Þrettán fyrirtæki starfa í Torginu en tíu í Kvosinni. Þar vinna margir fyrrverandi starfsmenn bankanna sem misstu vinnuna í kjölfar bankahrunsins.

Loks segir Sigríður að um 20 manns starfi í átta fyrirtækjum í frumkvöðlasetrinu Eldey, sem hóf starfsemi á háskólasvæði Keilis síðastliðið haust. Flest þessara fyrirtækja þar vinna að nýsköpun í orkuiðnaði. Auk þess rekur miðstöðin frumkvöðlasetur að Keldnaholti en þar hafa nú tólf fyrirtæki aðstöðu.

Aðspurð hvort ekki sé erfitt fyrir ný fyrirtæki að fóta sig í þessu árferði segir hún að mun erfiðara hafi verið fyrir frumkvöðlafyrirtæki í góðærinu þegar þau urðu að keppa um starfsfólk við fjármálageirann sem borgaði afar há laun.

Þá hafi fjárfestar líka frekar freistast til að leggja fjármagn í hlutabréf en nýsköpun.
 
<< Start < Prev 1 2 3 4 Next > End >>

Results 1 - 8 of 25
spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB