Frumkvöðlar hafa margir verið greindir með ofvirkni og jafnvel athyglisbrest og hefur æskan oft einkennst af lífsreynslu sem gert hefur kröfu til sjálfstæðis þeirra og trú á sjálfan sig. Þeir þykja velja sér ótroðnar slóðir og lenda því sumir oft í einelti af þeim sökum.
110. Góð ráð fyrir frumkvöðul sem er að hefja
rekstur!
Að hefja rekstur er eitt af þessum málefnum
sem fær marga til að forðast umræðuna eða hræðast málefnið af þeirri einföldu
ástæðu að það vex viðkomandi töluvert í augum. Þetta er auðvitað ofur skiljanlegt
mál og ekki endilega óyfirstíganlegt. Gott er í þessu samhengi að hugsa sér
eitthvað annað verkefni sem er nýtt fyrir viðkomandi en snýr ekki að því að
stofna fyrirtæki. Tökum til að mynda dæmi af því að viðkomandi ætli sér að
öðlast getu í að ganga á fjöll. Það þætti ekki gáfuleg nálgun að setja markið í
fyrstu ferð á Hvannadalshnjúk um miðjan vetur er það? Nei miklu frekar væri góð leið að taka daginn
snemma einn sunnudagsmorgun í sól og hita og ganga á Helgafellið eða
Úlfarsfellið sem er mátulega skammt frá höfuðborginni (ef þú býrð í RVK) og
mátulega lítið og lágt til að flestir ættu með góðu móti að geta farið upp á
topp og fengið árangur erfiðis síns launað með góðu og miklu útsýni yfir fjöll
og haf. Það er nefnilega þannig með okkur mannfólkið að við þurfum ávallt að
sjá árangur erfiðis okkar, því annars missum við áhugann og löngunina til að
vilja klára hlutinn og þolinmæði okkar þrýtur.
Það sama er hægt að segja um stofnun
fyrirtækis eða verkefni því tengdu. Góð leið er að ætla sér minna í upphafi og
láta á það reyna með lítilli áhættu og lágum tilkostnaði. Þannig getur þú kæri
frumkvöðull séð árangurinn strax og getur jafnvel lært af þeim mistökum sem þú
gerir um leið, fyrir þig til að nýta þér í næstu verkefni þar á eftir.
Hægt er í þessu samhengi að tala um prufutýpur
(prototypes) eða tilraunaútgáfur. Þar á ég við það hvernig hægt er að komast
hjá því að leggja út í mikinn kostnað og fyrirhöfn en samt fá tækifæri til að
koma hugmynd í verk og kanna markaðsmöguleika hennar. Að búa til prufutýpu eða
tilraunaútgáfu eða nokkrar og kanna markaðinn, sýna viðkomandi og lofa þeim að
sjá hvernig hluturinn virkar eða lítur út, getur skapað verðmæta niðurstöðu. Ef
viðkomandi viðskiptavinur vill kaupa, þá getur þú samið við þann hinn sama að
þú afhendir framleidda vöru eftir t.d. viku. Þannig getur þú í raun verið að
sýna prufutýpuna en selt svo framleiðslu í framhaldinu án þess að þurfa að
leggja út fyrir öllu strax í upphafi. Með því safnast reynsla, þekking sem þú
getur svo aftur nýtt í að betrumbæta útgáfuna til að gera hana markaðshæfari og
um leið fengið pening í kassann sem þú getur svo aftur nýtt þér til að stækka
áhættuþröskuld þinn við að koma verkefninu í framkvæmd.
Ef þú ætlar í gang með hugmynd....hafðu
samband og ég mun geta veitt þér þá hjálp sem þú hefur þörf fyrir. Allt frá
húsnæði, til ráðgjafar, til tengslamyndunar....hafðu samband.
Þarf markaðsetning að kosta mikla peninga?
Written by Birgir Grímsson
Tuesday, 10 March 2009
109. Þarf markaðsetning að kosta mikla
peninga?
“Ef gottið er gott, heitir gottið Freyja” var
sagt hér um árið í auglýsingarherferð fyrir Freyju sælgæti. Hér var á ferðinni
afar gott slagorð sem ég hef grun um að hafi sett mark sitt í hugum Íslendinga
sem heyrðu það á öldum ljósvakans. Hver sá sem fer í gang með verkefni, sem
ætlað er að vera fyrirtæki sem selur vörur, verður að átta sig á því að það
þarf að markaðssetja hverja vöru og þjónustu. Ég geri fastlega ráð fyrir að
þetta séu í raun engin ný sannindi fyrir fólki, en ég hef grun um að margir
telji að það þurfi að kosta mikla peninga og eins og von er með ný verkefni þá
eru peningar ekki það sem nóg er af.
Það sem skiptir máli í þessu samhengi, og er
kjarni þessarar umræðu minnar í dag, er undirbúningurinn. Með góðum undirbúning
og réttri vinnu, eru líkur á að hægt sé að koma í veg fyrir þá leiðinlegu stöðu
að vera að fara í gang með verkefni og hafa ekki efni á að markaðssetja það,
því peninginn þraut. Það eru nokkur atriði sem ég vil taka fram að skipti mestu
í þessu samhengi.
Skipulagning verkefnis og góð rannsókn á
markhópum vörunnar eða þjónustunnar, gefur innsýn inn í hvaða þarfir þeir
markhópar hafa.
Með því að reikna með frá upphafi að ákveðin
upphæð af stofnfé fari í markaðsstarf, er hægt að koma í veg fyrir að fé sé
ekki til þegar selja á vöruna.
Með því að selja fyrst eina vöru og svo næstu,
er hægt að lækka kostnað og hámarka árangur, því arður af einni vöru getur nýst
í að markaðssetja næstu.
Með því að hafa sterka tilfinningu fyrir bæði
vandamálinu sem verið er að leysa, vörunni eða þjónustunni sem leysa á
vandamálið, og markhópnum sem leitar að lausninni, þá er hægt að vinna snemma í
því að búa til slagorð sem nota ætti við markaðsstarf.
Með því að velja strax í upphafi með hvaða
hætti mestur árangur næst í markaðsstarfi má minnka líkur á að auglýst sé á
röngum stöðum og að peningur fari í súginn.
Með því að fá hjálp frá fólki sem hefur tengsl,
má oft auglýsa fyrir minni upphæðir þó sérstaklega ef auglýsingin fer frá manni
til manns í góðu umtali eða umsögn um gæði og ágæti vöru eða þjónustunnar.
Kæri lesandi. Að markaðssetja vöru eða
þjónustu er einn af hornsteinum þess að ná árangri og mikilvægt er að það sé
gert rétt. Ef varan eða þjónustan er vanhugsuð eða vanþróuð, verður mun
erfiðara að auglýsa hana og ná til markhóps. Ef verð er ekki rétt þá mun
árangur einnig láta á sér standa. Ef þú hefur hinsvegar hugsað fyrir þessu öllu
áður en farið er af stað eru líkur á að árangur verði eftir óskum. Það er
hinsvegar meira mál en maður heldur og gott að leita sér ráðgjafar hvað það
varðar, því það getur skipt sköpum í framtíðar árangri. Að kasta aurnum í
upphafi þýðir með öðrum orðum að þú kastar krónunni seinna í ferlinum. Eins og
slagorðið “Just do it” segir mikið um bæði vöruna, vörumerkið og verðmæti þess,
þá segi ég við þig, hafðu samband.
Góður fókus frumkvöðuls er gulli betri
Written by Birgir Grímsson
Monday, 09 March 2009
108. Góður fókus frumkvöðuls er gulli betri.
Af mörgum þáttum sem tengjast því að koma
hugmynd í framkvæmd, er einn þáttur einna mikilvægastur í mínum huga. Þessi
þáttur nefnist fókus. Hver frumkvöðull, hverra hæfileika eða hugmynda hann er
með, þarf ávallt að hafa góðan, sterkan og skýran fókus á því hver eru
aðalatriðin og hver eru aukaatriðin í ferlinum til árangurs. Ef frumkvöðul
skortir fókus, er hættan á að markmið eða áætlanir nái ekki fram að ganga.
Ástæðan fyrir því að ég dreg þetta upp er einkum sú vitneskja að margir
frumkvöðlar eru það sem kallað er sveimhugar. Að vera sveimhuga er ekki og alls
ekki eitthvað neikvætt, þvert á móti er það jákvætt og þó sérstaklega í
samhengi við frumkvöðla. Frumkvöðlar væru ekki frumkvöðlar nema vegna þess að þeir
eru sveimhugar, því sá eiginleiki hjálpar frumkvöðlum að vera bæði skapandi og
bjartsýnir. Það er líka einmitt það sem gerir þeim erfiðast fyrir að vera
fókuseraðir, því þegar hugmyndir reika fram og til baka, getur á stundum verið
erfitt að láta hugmyndina reika eftir beinni línu, ef þú skilur. Og að láta
hugmynd reika eftir beinni línu er sá fókus sem ég er að tala um. Málið er að
það er ekki þannig að viðkomandi frumkvöðull þurfi að mínu mati að verða
meistari í að láta reika eftir beinni línu, heldur miklu frekar að gera sér
grein fyrir því hversu hæfur sá hinn sami er í þessari iðju, og hvort þörf sé á
því að hafa einstakling með sér sem getur séð um að halda fókusi á verkefni því
sem er í gangi hverju sinni. Þetta tengist auðvitað því sem ég kalla tengslamyndun,
en hún gerir hverjum einstakling það mögulegt að ná meiri árangri en ætla mætti
í upphafi því margar hendur vinna oftast meira og léttara verk en ein.
Það er líka þannig að það er mikilvægt að vera
með réttan fókus hverju sinni. Það sem ég á við er að það er ekki í raun nóg að
hafa fókus því ef fókusinn er rangur þá er stefnt í vitlausa átt og þá mun
árangur verða annar er ætlað var í upphafi. Þess vegna er mikilvægt að frumkvöðullinn
sjálfur sjái í raun um að vita hvar og hvernig fókus þarf að vera ogmeð hvaða hætti þarf að framfylgja réttum
fókus og hver sé bestur að halda þeim fókus sem þarf. Það er auðvitað augljóst
mál að mikilvægi frumkvöðulsins í þessu máli er gríðarlegur eins og gengur
einnig með að koma hugmyndum í framkvæmd. Ef frumkvöðullinn er ekki með hausinn
skrúfaðan rétt á og ekki inni í öllum þeim mikilvægu hlutum sem koma að
framkvæmd verkefnisins.....er hættan sú að fyrirhöfnin sé fokin út í veður og
vind.
Kæri lesandi, ef þú ert með hugmynd og skortir
fókus, gæti ég komið þér á rétt spor. Hafðu endilega samband og sjáum hvort við
getum ekki rætt saman um næstu skref. Ég hlakka til að heyra frá þér.
Hversu mikilvægt er að hafa heimasíðu við stofnun fyrirtækis?
Written by Birgir Grímsson
Tuesday, 24 February 2009
107. Hversu mikilvægt er að hafa heimasíðu
við stofnun fyrirtækis?
Þessi spurning er efalaust eitthvað sem margir
spyrja sig við upphaf stofnun fyrirtækis í dag. Ástæðan er frekar einföld.
Nærri allir nota netið með einum eða öðrum hætti og flestir vinna við tölvu eða
eru með tölvu heima hjá sér og m.a. sækja sér nú til dags netpóst í meira mæli
en þeir taka við símtölum. Heimasíður er verkfæri til að nota en eins og með
svo margt annað þá er ekki nóg að setja upp heimasíðu og það er heldur ekki
alveg saman hvernig heimasíðan er gerð eða lítur út. Þar koma inn margir þættir
sem geta skipt máli og er mikilvægt að það sé gert með réttum hætti. En hvað er
heimasíða? Heimasíða er miðill einhvers sem vill hafa andlit út á við og oftast
til annarra en þess sem setur upp heimasíðuna eða fær hana gerða. Heimasíða er
upplýsingamiðill um ákveðna t.d. starfsemi auk nánari upplýsinga um t.d. vörur,
þjónustu, valmöguleika, sögu og uppruna svo eitthvað sé nefnt. Í raun má segja
að hver og ein heimasíða eigi að laga sig eftir þeim tilgangi sem henni er gert
að uppfylla í hvert og eitt skipti fyrir hvert og eitt fyrirtæki. Þannig getur
heimasíða verið fyrirtæki á vefnum sem selur þjónustu eða vörur. Heimasíðan
gæti líka verði einhverskonar upplýsingamiðill eða fróðleiksveita sem styður
við eitthvað annað markmið upphafsmanns. Heimasíðan getur verið til þess fallin
að skapa trúverðugleika um eitthvað ákveðið málefni eða fyrirtæki sem á í hlut.
Heimasíða er í raun tækifæri til að styrkja samskiptagrundvöll fyrirtækis við
viðskiptavini sína og er í raun tiltölulega ódýr aðferð við t.d. að auglýsa
miðað við aðra auglýsingakosti. Þannig er nóg fyrir þig að koma nafni
heimasíðunnar á framfæri víðsvegar og fólk getur svo sjálft af forvitni farið
inn og leitað meiri upplýsinga. Heimasíða er mikilvæg í dag í nútíma þjóðfélagi
þar sem fá fyrirtæki eru eftir sem ekki eru með heimasíðu. Fólk er fljótt að
dæma gæði heimasíðu, hvort sem það hefur hæfileika til að dæma um það eða ekki.
Það getur því skipt miklu máli hvort heimasíðan sé gerð svona eða hinsegin. Ef
hinsvegar þú hefur hugsað þér ákveðið hlutverk fyrir heimasíðuna og ætlar þér
að nota hana í markvissum tilgangi, er mikilvægt fyrir þig að vera ekki of
sparsamur í því máli. Það gæti reynst þér dýrkeypt, því það er ávallt hættan á
því að þeir peningar sem þú ert að setja í þetta komi ekki þér að gagni.
Staðsetning hluta á heimasíðunni, auglýsinga, mynda og annarra upplýsinga getur
verið þröngur stakkur búinn og þó að einhver kunni að setja upp heimasíðu, er
ekki þar með sagt að hann kunni að hanna heimasíðunna eftir þörfum þínum. Vertu
því viss um að spyrja og spyrja og spyrja og komast að því sjálf/ur hvort
hlutir séu réttir eða rangir í þessum efnum og leita til réttra aðilla við að
dæma um hvort gæði séu með í för. Hafðu samband ef þú ert að stofna fyrirtæki
og vantar aðstoð, ég get hjálpað þér.