spacer.png, 0 kB
Sýnt hefur verið fram á að með því að styðja betur við bakið á frumkvöðlum og nálgast þá frá þeirra eigin forsendum, fjölgar árangursríkum verkefnum sem frumkvöðlar fara í gang með og ýtir þar með undir fjölbreyttara atvinnulíf, sérstaklega í grennd við þar sem stuðningurinn á sér stað, svo sem í sveitarfélagi.
 

Nýtt blogg daglega,

Nýtt efni á síðunni daglega!!!

Skrifið mér línu og segið mér frá! 

Námskeið á Landsbyggðinni.

Hafið samband!! 

FRÉTTABRÉF

frá frumkvoðull.com. 

 

Ertu með rekstur,

vantar þig ráðgjöf

varðandi nýsköpun? 

Hafðu samband 

augl.jpg

Könnun

Hvað færðu margar hugmyndir á dag??
 

Innskráning






Týnt lykilorð
Óskráður notandi? Smelltu hér

spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB
 
VELKOMIN!!

Velkomin á frumkvöðull.com!

Þessi síða býður upp á margskonar fróðleik og upplýsingar í tengslum við allt sem tengist frumkvöðlum og frumkvöðlastarfsemi almennt. 

Námskeið

Á síðunni eru í boði námskeið sem hafa það yfirlýsta markmið að leiðbeina þeim sem hafa hug á að fara út í sjálfstætt og miðla af þeirri reynslu sem nú þegar er fyrir hendi.

Blogg

Þú getur lesið bloggið mitt en ég reyni að blogga á hverjum virkum degi um málefni sem tengjast viðfangsefni síðunnar og svo getur þú nálgast mig með ýmiskonar fyrirspurnir um málefni þessu tengdu.

Ráðgjöf

Ég býð upp á ráðgjöf fyrir frumkvöðla, nýbyrjaða jafnt sem lengra komna, og getur það verið allt frá því að aðstoða við að komast í gang, út í að fá hjálp við viðskiptaáætlun, heimasíðu, kynningu, framsetningu eða því að þróa nýju vöruna eða þjónustuna enn betur. Fyrirtæki sem er nýkomið í gang gæti haft þörf fyrir að skerpa ögn á markmiðum sínum, sölu eða vörufókus eða vantar jafnvel að bjóða upp á nýjar eða fleiri vörur eða þjónustuvalmöguleika.

Nýtt efni daglega

Ég reyni að bæta við efni á síðuna daglega og bjóða þér upp á allt það sem þú gætir haft þörf fyrir í tengslum við nýju hugmyndina þína. Skoðaðu og hafðu svo samband, ég mun taka vel á móti þér.

Með bestu kveðju og njóttu vel !

Birgir Grimsson iðnhönnuður (MA) og frumkvöðull (MA).

 

UMSAGNIR UM RÁÐGJÖFINA

Ég leitaði aðstoðar hjá Frumkvöðli fyrst og fremst til að gera samantekt á því sem starfsemi mín fólst í og að koma því á framfæri á vefsíðu minni að skipuleggja síðuna áður en lagt er í hana og hefja umræðu og brain storma um ýmiss atriði sem ég hafði ekki pælt í áður. Frá þessum grunnhugmyndum fæddust nýjar hugmyndir og mér finnst þetta vera mjög góð leið til þess að fá mann til að virkja hugsun í kringum markaðsetningu og gera fyrirtæki important á netinu.

Bestu kveðjur,

María (MKM foodwear)

----------------------------------------- 

Takk kærlega fyrir fundinn.

Þessi fundur okkar var mjög lærdómsríkur fyrir mig.

Varðandi fundinn okkar og samantekt þína á honum að þá er ég mjög ánægður með útkomuna. Samantekt niðurstöðu fundarins er til fyrirmyndar og mun reynast mér mikil hjálp við að skipuleggja mig varðandi frekari vinnu við þetta ákveðna “consept” og þróun þess. 

Að lokum vil ég þakka þér kærlega fyrir góða ráðgjöf.

Helgi K Pálsson innanhúsarkitekt. 

Síðast uppfært ( Friday, 22 August 2008 )
 
Ertu frumkvöðull, hvað áttu að gera ??

Námskeiðið er ætlað þeim sem telja sig vera frumkvöðla, eru með hugmynd í farvatninu og langar til að stofna fyrirtæki eða koma á stað einhverju verkefni sem krefst meira en bara leika sér með hugmyndir heima í stofu.

Ávinningur af námskeiði

Að námi loknu mun viðkomandi hafa meiri yfirsýn yfir möguleika sína og sinnar hugmyndar og skarpari fókus á því sem er líklegt til árangurs. Nemandi mun hafa vald og þekkingu á nokkrum af þeim aðferðum sem notast má við til að fá, velja úr og miðla bestu hugmyndum sínum til annarra. Nemandinn mun hafa skýra sýn á því sem þarf að gera og geta í framhaldi unnið með verkefni sitt með lágmarks kostnaði og hámarks árangri.

Nánar um námskeiðið

Námskeiðið er hugsað fyrir alla þá er hafa áhuga á, brenna fyrir eða ætla sér að verða sjálfstæðir. Námskeiðið getur einnig nýst þeim sem eru starfandi með eigin rekstur í litlu fomi en telja sig vanta eitthvað til að fá meira út úr því sem þeir eru að gera.

Námskeiðið getur einnig hentað þeim sem eru með, fá eða hafa fengið hugmyndir að vöru, þjónustu, eða fyrirtæki í einhverju formi og vita í raun ekki hvað sé best að gera til að láta drauminn verða að veruleika eða til að komast að því hvort hugmyndin sé í raun góð eður ei.

 

Námskeiðið er hugsað sem leiðbeining í því hvernig best sé að koma hugmynd í að verða betri hugmynd, hvað sé best að gera til að komast af stað og vita meira, hvað sé til staðar í umhverfinu og samfélaginu sem styður við frumkvöðlamennsku og á hvern hátt farsælast sé að halda áfram með verkefnið með sem minnstri áhættu, mestum árangri og mestum gróða.

 

Markviss vinna, rétt raunsæ hugsun og sýn, lágmörkun áhættu og hámörkun árangurs eru lykilorðin.

Sá sem er með eigin rekstur gæti nýtt sér námskeiðið til að fá nýjan fókus á eigin starfsemi og á hvern hátt sá gæti nýtt tækifærin sem eru í stöðunni á betri, markvissari hátt en áður.

Á námskeiðinu er farið yfir alla helstu þætti þess að gera hugmynd að veruleika og allt þar á milli.

Skrá á námskeið

ruglaur__rminu.jpg

Síðast uppfært ( Friday, 28 March 2008 )
Nánar...
 
Af hverju námskeið fyrir frumkvöðla?

Sýnt hefur verið fram á að með því að bjóða upp á sérhæfð námskeið og stuðning við frumkvöðla og nýsköpunarfólk eru meiri líkur á að verkefni þeirra nái tilætluðum árangri. Frumkvöðlar uppgötva ný tækifæri en það er óþarfi að finna upp hjólið. Hann getur því einbeitt sér að því að slípa til það hjól sem hann er með í gangi sjálfur og notið svo reynslu þeirra sem á undan hafa farið með aðrar sambærilegar hugmyndir og verkefni.

Eins og sýnt er á þessu grafi hér fyrir neðan samanstendur ferillinn frá hugmynd að reksturs fyrirtækis af nokkrum þáttum sem þörf er á að farið sé í gegnum til að árangur náist.

a_to_g_feril.jpg

 

 

 




Mín kenning og mín nálgun til þessa ferils felst í að aðstoða frumkvöðulinn eins snemma í ferlinu og hægt er, og gera honum því kleift að sortera og skilgreina sína hugmynd með betri hætti og komast lengra með hana án mikils kostnaðar. Að mínu mati hefur þessi þáttur verið vanræktur í aðstoð þeirri sem hefur verið í boði fram að þeim tíma.

mn_hersla_copy.jpg
Síðast uppfært ( Tuesday, 19 February 2008 )
 
spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB