|
Velkomin á frumkvöðull.com!
Þessi síða býður upp á margskonar fróðleik og upplýsingar í tengslum við allt sem tengist frumkvöðlum og frumkvöðlastarfsemi almennt.
Námskeið
Á síðunni eru í boði námskeið sem hafa það yfirlýsta markmið að leiðbeina þeim sem hafa hug á að fara út í sjálfstætt og miðla af þeirri reynslu sem nú þegar er fyrir hendi.
Blogg
Þú getur lesið bloggið mitt en ég reyni að blogga á hverjum virkum degi um málefni sem tengjast viðfangsefni síðunnar og svo getur þú nálgast mig með ýmiskonar fyrirspurnir um málefni þessu tengdu.
Ráðgjöf
Ég býð upp á ráðgjöf fyrir frumkvöðla, nýbyrjaða jafnt sem lengra komna, og getur það verið allt frá því að aðstoða við að komast í gang, út í að fá hjálp við viðskiptaáætlun, heimasíðu, kynningu, framsetningu eða því að þróa nýju vöruna eða þjónustuna enn betur. Fyrirtæki sem er nýkomið í gang gæti haft þörf fyrir að skerpa ögn á markmiðum sínum, sölu eða vörufókus eða vantar jafnvel að bjóða upp á nýjar eða fleiri vörur eða þjónustuvalmöguleika.
Nýtt efni daglega
Ég reyni að bæta við efni á síðuna daglega og bjóða þér upp á allt það sem þú gætir haft þörf fyrir í tengslum við nýju hugmyndina þína. Skoðaðu og hafðu svo samband, ég mun taka vel á móti þér.
Með bestu kveðju og njóttu vel !
Birgir Grimsson iðnhönnuður (MA) og frumkvöðull (MA).
UMSAGNIR UM RÁÐGJÖFINA
Ég
leitaði aðstoðar hjá Frumkvöðli fyrst og fremst til að gera samantekt á því sem starfsemi mín fólst
í og að koma því á framfæri á vefsíðu minni að skipuleggja síðuna áður en lagt
er í hana og hefja umræðu og brain storma um ýmiss atriði sem ég hafði ekki
pælt í áður. Frá þessum grunnhugmyndum fæddust nýjar hugmyndir og mér finnst
þetta vera mjög góð leið til þess að fá mann til að virkja hugsun í kringum
markaðsetningu og gera
fyrirtæki important á netinu.
Bestu
kveðjur,
María (MKM foodwear)
-----------------------------------------
Takk kærlega fyrir fundinn.
Þessi fundur okkar var mjög lærdómsríkur fyrir
mig.
Varðandi fundinn
okkar og samantekt þína á honum að þá er ég mjög ánægður með útkomuna. Samantekt
niðurstöðu fundarins er til fyrirmyndar og mun reynast mér mikil hjálp við að
skipuleggja mig varðandi frekari vinnu við þetta ákveðna “consept” og þróun
þess.
Að lokum vil ég þakka þér kærlega fyrir góða
ráðgjöf.
Helgi K Pálsson innanhúsarkitekt.
|